Skip to main content

Sýndu viðskiptavinum þínum fram á að varan sem þú ert að selja komi úr sjálfbærum veiðum með því að nota bláa MSC-umhverfismerkið. Kynntu þér hvernig þú getur komið á framfæri tengingu þinni við vottaðar sjálfbærar sjávarafurðir.

 

  1. Allar sjávarafurðir sem hafa bláa MSC-merkið eru rekjanlegar til sjálfbærra fiskveiða. DNA-prófanir, fyrirvaralausar eftirlitsúttektir og rannsóknir, sem framkvæmdar eru af hálfu MSC, hafa mikinn fælingarmátt gegn röngum merkingum og öðru svindli.
  2. Vottunarkerfi MSC og bláa MSC-merkið hefur algera sérstöðu og er í fararbroddi sem þekktasta vottunarkerfið á heimsvísu fyrir sjávarafurðir sem eiga uppruna sinn úr sjálfbærum veiðum og er samþykkt af GSSI (Global Sustainable Seafood Initiative) og FAO (Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna). 
  3. Rannsóknir sýna að neytendur treysta helst vísindamönnum og frjálsum félagasamtökum til að standa vörð um lífríki hafsins og að óháð vottunarkerfi auki tiltrú neytenda á vörumerkjum.

Hvað segja neytendur'

Í GlobeScan, neytendakönnun sem gerð var í Noregi árið 2018 á vegum MSC, kom meðal annars fram: 

67%

neytenda norskra sjávarafurða telja að til þess að vernda heimshöfin eigi neytendur einungis að kaupa sjávarafurðir sem eiga uppruna sinn að rekja til sjálfbærra veiða.

61%

svarenda sögðu að neytendur ættu fremur að skipta yfir í neyslu á fisktegundum sem eru veiddar á sjálfbærari hátt en þær sem eru í boði.

52%

segjast bera meira traust til framleiðenda og vörumerkja sem nota umhverfismerki.

Sækja um notkun á MSC merkinu

Umsókn

Fólki er sífellt meira umhugað um uppruna sjávarfangs. Bláa MSC-merkið auðveldar viðskiptavinum þínum að velja sjávarafurðir sem rekja má alla leið til sjálfbærra veiða. Til að sækja um notkun MSC-merkisins, vinsamlegast sendu inn umsókn: Apply to use the MSC label | Marine Stewardship Council